Ein af mínum uppáhalds ketó uppskriftum er brokkolíið sem steikt er á pönnu með pistasiu hnetum og lakkríssalti. Þetta er ótrúlega góð blanda og passar einstaklega vel með kjúkling.
Það besta er að ég á alltaf til í þennan rétt þar sem ég nota frosið brokkolí sem geymist vel og lengi.
Uppskrift:
500 gr Frosið brokkolí sem ég afþýði í örbylgjuofninum
Set ólífuolíu eða avocado olíu á pönnu og steiki brokkolíið uppúr henni ásamt smá hvítlauksdufti.
2 msk soya sósu bætt útá ásamt 1 dl af pistasíuhnetukjörnum
Að lokum toppa ég réttinn með 1-2 tsk af lakkrís salti frá saltverki
Einfalt – fljótleg og kemur skemmtilega á óvart
Fleiri uppskriftir og fróðleik um ketó er að finna inná instagram Það væri gaman að sjá ykkur einnig þar