Fyrir nokkru síðan bjó ég til skemmtilegar bollakökur sem slóu algerlega í gegn í afmælisveislu.
Þessar kökur eru svokallaðar Gravity bollakökur sem hafa verið að slá í gegn á youtube on pinterest
Uppskriftin er í raun einföld en þú bakar bollaköku eins og þig langar í og setur á hana krem.
Smarties trixið er svo næst á dagskrá.
Ég keypti svona poka af mini smarties sem fæst ma. í fríhöfninni, mikilvægt að það sé í litlum pökkum!
Svona líta pakkarnir út
Fyrsta skref er að tæma alla kassana ofaní box
Því næst þarf að klippa sogrör í heminga
Ég setti helminginn af einu eldhúsbréfi inn í hvern kassa og passaði að brjóta inn flipana við opið, mér fannst það koma betur út.
Rörinu er svo skáskotið inn í kassann.
Að lokum er rörinu stungið ofaní tilbúna bollaköku og nokkrum smarties raðað upp rörið með því að nota bráðið súkkulaði sem lím