Table of Contents
Ég á eina uppskrift af grænum smoothie drykk sem er alltaf vinsæll og gerum við fjölskyldan okkur svona drykk um helgar .
Krakkarnir elska þennan Hulk drykk ( Já stundum skiptir nafnið öllu máli )
Snilldin við þennan drykk er að ég á oftast allt til í hann í frystinum og því hægt að gera hann hvenær sem er.
Uppskrift :
1 Banani
Frosið mangó
Spínat ( kaupi ferskt og skelli beint í frystinn)
Engifer ( Set í frystinn og raspa eftir þörfum)
Fylli svo upp með vatni og set Nurtibullet tækið í gang
Útkoman er þessi góði fagurgræni drykkur