Það eru nokkur tæki og tól sem að ég nota mikið í eldhúsinu sem auðvelda mér minn ketóvæna lífstíl. Það eru margir að stíga sín fyrstu skref hvað varðar ketómataræði og ég hef fengið margar spurningar hvað væri skemmtilegt að gefa þeim sem eru á Ketó í jólagjöf.
Hérna eru nokkur af mínum uppáhalds jólagjafahugmyndum en þær eru alveg frá 999 og upp í 33.000 krónur. Því ættu allir að geta fundið eitthvað á listanum.
Ketó – Uppskriftir – Hugmyndir – Skipulag 5.699 kr
Ég get að sjálfsögðu ekki annað en mælt með bókinni minni í jólapakkann en hún er yfir 150 blaðsíður og inniheldur fróðleik, uppskriftir og góð ráð fyrir alla þá sem vilja prófa ketómataræði.
Uppskriftirnar eru allar sykur, hveiti og glúteinlausar og geta því allir nýtt sér uppskriftinar hvort sem þeir eru á Ketó/lágkolvetna eða vilja sleppa sykrinum.
Bókin fæst í Hagkaup, pennanum eymyndsson og inná heimasíðunni minni Hannathora.is
Ketó – 4 vikna matarplan
Matarplanið inniheldur 4 vikna ketó matseðil þar sem búið er að raða niður öllum máltíðum fyrir heilan mánuð niður.
27 bls hefti með fróðleik, auka uppskriftum, innkaupalista og skyndibitalista fyrir þá sem vilja fá svarið við spurningunni endalausu “Hvað er í matinn”?
Matarplanið fæst HÉR
Belgískt vöfflujárn – 5.990
Ég nota mitt belgíska vöfflujárn í hverri viku til að baka girnilegar Ketó ostavöfflur sem eru alveg frábærar í grillsamlokur eða sem hvítlauksbrauð með ítalska matnum.
Sætar ketóvöfflur sem súkkulaði smyrju og rjóma slá líka um gegn með helgarkaffinu.
Hérna fann ég link á svipað járn og ég nota inná ELKO.is – SMELLIÐ HÉR
Airfryer – 32.990
Ég fékk Ninja MAX að gjöf frá ELKO á dögunum.
Þetta tæki er að breyta ýmsu í eldhúsinu hjá mér en það sem kom mér mest á óvart er hvað eldunartími styttist gífurlega þegar ég nota airfryer.
Maturinn verður stökkur að utan með airfryer aðferðinni og safaríkur og góður inní en ég er núþegar búin að prófa ýmislegt, allt frá pylsum yfir í sítrónulax og kjúkling.
Það er afar auðvelt að þrífa Ninja körfuna og ég er með stærri gerðina – Ninja Max
Ég kem heilum kjúklingi í körfuna sem hentar vel fyrir alla fjölskylduna og tækið er auðvelt að stilla.
Hægt er að stilla hitastig allt að 240 gráðum og velja milli Max crisp / Airfry / Roast.
Ég stilli einfaldlega tíma og hitastig og tækið pípir þegar allt er klárt.
Hægt er að skoða Ninja MAX inná elko.is með því að SMELLA HÉR
Zucchini yddari – 2.749
Minn uppáhalds yddari fyrir kúrbít keypi ég fyrir nokkum árum í Hagkaup og hann er frá Westmark.
Hann hefur tvær stillingar og er alveg rosalega beittur. Það fylgir stykki með til að setja aftaná grænmetið og þið snúið með handfanginu þegar neðarlega er komið til að passa fingurna.
Hérna er uppskrift af kúrbíts núðlurétti frá mér : https://www.hannathora.is/uppskriftir/zucchini-nudlur-i-ostasosu/
Ostarifjárn – 5.900-6.900
Microplane hafa verið mín uppáhalds rifjárn í mörg ár en ég hef alltaf keypt þau í bandaríkjunum. Þau fást meðal annars hjá Progastro hér á landi en eru afar falleg í jólapakkann. Ég hef aldrei borðað jafn mikið af osti eins og eftir að ég byrjaði á Ketó og gott rifjárn er staðalbúnaður. Það er hægt að rífa t.d. osta, grænmeti eða krydd. Progastro.is
Skál fyrir örbylgjuofninn – frá 2.490 kr
Ég nota góða glerskál í flestan brauðbakstur en það er afar hentugt að nota glerskál með handfangi sem má fara í örbylgjuofn til að bræða ostinn í brauðið. Þessar skálar frá pyrex taka 1 líter og eru alveg passlegar í fathead ketó deigið. Hef séð þær í Hagkaup í nokkrum stærðum og gerðum.
Rjómasprauta – 7.000 -10.000 kr
Ég er alltaf með rjóma í rjómasprautu inní ísskáp og nota oft í viku. Þeyttur rjómi er frábær í skyrskálar, ofaná vöfflur eða útí góða kaffidrykki. Rjóminn geymist rosalega vel í rjómasprautu og þar vinnur gasið með okkur. Ég hef átt Isi rjómasprautu í mörg ár en þær fást í nokkrum útgáfum. Snilldar aukahlutur í öll eldhús og við notum bara þann rjóma sem við þurfum hverju sinni.
Nestisbox fyrir jógúrt – 999 kr
Ég hef keypt ansi mörg nestisbox í gegnum tíðina en mér finnst alveg kjörið að eiga box sem er svipað þessu til að útbúa skyrskálar/ gríska jógúrt. Passlega stórt box er tilvalið að nota og það er frábært að geta sett múslí í innleggið þannig að það haldist stökkt og gott þar til við ætlum að fá okkur gómsætt jógúrt í nesti. Ég keypti mitt í ameríku en það er frá Sistema og á að fást í nokkrum búðum hér á landi.
Salatbox – um 1800 kr
Gott nestisbox gerir nestis undirbúninginn auðveldari og maturinn helst ferskari ef sósan er geymd til hliðar. Ég á nokkur lagskipt box og set sósu, hnetur, ostasnakk eða það sem á að haldast stökkt í litlu boxin.
Olio Nitti – Gjafapakki 10.900 – 17.900
Ég sá þessa fallegu gjafapakka inná síðunni hjá Olio Nitti með skurðarbretti, hníf, svuntu og hágæða ólífuolíunni frá Olio Nitti.
Pakkinn er unninn í samstarfi við lækninn í eldhúsinu með svuntu og hníf sem er ávallt gott að eiga. Það eru nokkrar útgáfur af pökkum inná síðunni þeirra olionitti.is