Eygló Árnadóttir er mikill aðdáandi hrekkjavökunnar og var með dásamlega hryllilega hrekkjavökuveislu um helgina.
Hrekkjavakan hefur verið að njósa sívaxandi vinsælda undanfarin ár og greinilegt að hún er komin til að vera.
Eygló var svo indæl að leyfa okkur að sýna frá hrekkjavökupartíinu.
Ótrúlega flottar skreytingar
Eygló fékk mikið af skreytingunum í Party city í Bandaríkjunum en einnig fékk hún eitthvað í Tiger og Partýbúðinni.
Hún reif niður rauðan plastdúk og setti yfir lampa í íbúðinni til að hafa flotta dempaða lýsingu – Lýsingin gerir mikið fyrir andrúmsloftið í veislunni.
Veisluborðið var með því flottara sem ég hef séð
Ótrúlega flott hugmynd að nota kex sem legsteina
Skrímslakrispies
Puttar í dýfu- vanalega væri það eitthvað ógeðslegt en á hrekkjavöku er allt leyfilegt
Köngulóakaka og sykurpúðadraugar alveg í stíl við þemað.
Kertin setja punktinn yfir i-ið og gefa borðinu flott heildarútlit.
Mæðgurnar föndruðu saman fyrir veisluna og gerðu kertin svona æðislega flott.
Dóttir hennar bjó til drauga leðurblökur og hengdi upp
Fljótandi hendi, sniðugt að fylla hanska af vökva og frysta
Eygló með börnunum sínum á Hrekkjavökunni – hátíð fyrir alla fjölskylduna
Eygló : “Svo er möst að hafa hressa partýgesti sem fara alla leið í búningum – það er flottasta skrautið.“
Þá er bara að fara að safna hugmyndum fyrir næsta ár