Það leynist einn æðislegur og fjótlegur réttur í fjölskyldunni sem slær alltaf í gegn og kemur alltaf jafn mikið á óvart.
Upprunalega var tengdafjölskylda mín að reyna að finna eitthvað sem líktist hinum fræga KFC twister og þaðan kemur nafnið.
Þessi útgáfa er þó hollari þar sem kjúklingurinn er einungis pönnusteiktur og þar af leiðandi mjög fljótlegur.
Þetta eru innihaldsefnin í grunninn. Ég sker niður bringurnar í bita sem eru þá svipaðir af stærð eins og um lundir væru að ræða. Það er fljótlegra og auðveldara að hafa auga með þeim sem þarf að snúa á pönnunni.
Byrjum á að steikja kjúklinginn uppúr ólífuolíu þar til hann er fulleldaður. Ég skipti svo alltaf um töng áður en ég set sósuna útá til að passa að enginn hrár kjúklingavökvi komist í sósuna.
Þetta er sósan sem ég set útá kjúklinginn og leyfi henni að malla svolítið svo að hún verði þykkari og nái að hjúpa kjúklinginn.
Þessi heitir Thai sweet clilli og fæst í öllum helstu matvöruverslunum.
Þegar allt er steikt er komið að því að raða á tortillurnar og er mjög gott að setja sýraðann rjóma, taco sósu, stökkt kál og ost.
Eitt gott ráð sem við notum alltaf hérna heim þegar við rífum ost er að spreyja smá Pam spreyi á rifjárnið, það kemur í veg fyrir að osturinn festist og það verði erfitt að rífa hann
Hægt er að leika sér með samstetninguna og tilvalið að bæta allskonar grænmeti útá. Börnin eru mjög hrifin af maísbaunum og gúrku og kemur það mjög vel út.
Þegar við gefum börnunum burrito notum við bolla til að halda utanum vefjuna svo það leki ekki allt útum allt, þetta er líka mikið sport og er ég ekki frá því að þau séu duglegri að borða matinn þegar hann er settur í svona öðruvísi ílát
Tómas minn sáttur með múmínvefjuna
Hvet ykkur eindregið til að prófa þessa snilld