Table of Contents
Bearnaise sósa er í miklu uppáhaldi heima hjá mér og oftar en ekki verður hún fyrir valinu þegar við grillum gott kjöt.
Þegar ég hef lítinn tíma hef ég skellt í bearnaise sósuna á örfáum mínútum og er þessi aðferð snilld þegar maður vill góða sósu á methraða.
3 Eggjarauður settar í hrærivélina með þeytaranum á
300 gr ekta íslenskt smjör sett í gler mælikönnu á 1 mínútu í örbygjuna.
Þegar rauðurnar eru orðnar ljósar og vel þeyttar þá bæti ég kryddi útí.
2 msk Estragon
1 teskeið nautakjötkraftur í duftformi
2 msk bernaise essense
Pipar eftir smekk
Þegar rauðurnar eru orðnar léttar og ljósar kíki ég á smjörið og sé hvort það þurfi lengri tíma.
Ég vil hafa smá af óbráðnuðu smjöri eftir í mælikönnunni sem ég hræri svo í svo að smjörið sé ekki of heitt þegar það fer útí eggjablönduna.
Helli svo smjörinu í mjórri bunu út í eggjablönduna og læt vélina hræra um leið.
Þá er sósan tilbúin
Svo mæli ég með fjólubláa Maruud snakkinu sem er ótrúlega gott með góðu kjöti og bernaise sósunni og slær alltaf í gegn sem fljótlegasta meðlætið