Table of Contents
Ég hef alltaf haft gaman af skemmtilegum útfærslum á drykkjum í veislum og hef pælt mikið í þeim þegar kemur að mínum veislum.
Afhverju ættu óáfengir drykkir að vera eitthvað minn spes en þeir áfengu?Ég kann ráð við því
Ég á nokkra svona drykkjardúnka með kana sem ég hika ekki að við að nýta við hvaða tilefni sem er. Það eru allir spenntir að prófa þó svo að þeir myndu innihalda einungis vatn með klökum þá vekur þetta athygli.
Ég hef komið mér upp þremur uppskrifum af óáfengum kokteilum sem ég nýti mér oft í veislum.
Jarðarberjagos
2 lítrar af rauðum kristal plús
2 stk rauður jarðarberja Sun Lolly ís
Klakar
Jarðarber eða sítrónusneiðar
Límónaði
3 dl egils þykkni með sítrónu og líme bragði
2 dl sódavatn með sítrónu
Appelsínusneiðar og sítrónusneiðar
Klakar
Sítrónusódavatn
Sódavatn með sítrónubragði
Sítrónusneiðar
Klaki
Þessi er auðvitað sá allra einfaldasti en nauðsynlegt að bjóða uppá sykurlausan drykk og þessi er ávallt vinsæll
Hvað varðar val á víni þá reyni ég að velja vín sem hentar flestum og er nokkuð hagstætt í innkaupum. Ég var með þessa rauðvínstegund í brúðkaupinu mínu 2014 og er það í svolitlu uppáhaldi síðan þá.
Hvítvínið var sumarlegt og sætt og fór vel af því. Það passaði vel með matnum og ekki síður vinsælt seinna um kvöldið.
Ég valdi tvær tegundir af bjór þar sem smekkur manna er misjafn og einnig var ég hrifin af því að fá flottan contrast í umbúðunum
Balann keypti ég í Ilva og skiltið í Hagkaups outlettinu í holtagörðum
Léttvínsbarinn fékk fallegt skraut
Fékk lánaða diskókúlu hjá góðri vinkonu
Hvað varðar magn í veislum þá langar mig að benda ykkur á sniðuga reiknivél inná vinbud.is þar sem hægt er að velja hvernig veislu um ræðis, hversu löng hún er og hversu margir gestir eru væntanlegir. Reiknivélin reiknar svo út það magn sem æskilegt er að kaupa. Ég persónulega kaupi alltaf aðeins meira því það er ekkert meira svekkjandi en að vera með of lítið.
Hérna er linkur á reiknivélina – http://www.vinbudin.is/heim/matur_og_vin/veisluvin.aspx
Vona að þessi ráð nýtist ykkur