Table of Contents
- Kostir
- Maður skipuleggur sinn tíma sjálfur
- Enginn akstur á morgnanna í skólann
- Ef maður veikist eða börnin þá missir maður ekki af heilum degi- þú endurskipuleggur þig!
- Hægt að stunda með vinnu
- Alltaf hægt að senda kennurum póst og fá svör
- Ef maður náði ekki einhverju dæmi þá getur maður spólað til baka og hlustað aftur á upptökuna
- Hægt að fá námslán alveg eins og í öðrum skólum
- Gallar
- Maður þarf að hafa mikinn aga til að setjast niður og sinna náminu ( mjög einstaklingsbundið)
- Maður hittir skólafélagana meira á netinu heldur en í alvörunni
Fyrir 4 árum síðan langaði mig að komast í námið sem mig dreymdi um og var að skoða hvað væri í boði hérna á landi.
Ég rakst á fjarnámið hjá Háskólanum á Akureyri og hafði heyrt góða hluti af viðskiptadeildinni hjá þeim og vildi geta stundað nám samhliða fjölskyldulífinu.
Þá auðvitað reynir maður að muna eftir einhverjum sem hefur verið í náminu og fær aðeins að spyrja út í hvernig þetta sé í raun og veru. Í mínu tilfelli voru tvær konur með mér í bumbuhóp á Facebook sem höfðu verið í náminu og alger snilld að spyrja þær spjörunum úr um bæði kosti og galla.
Síðan ég byrjaði hef ég fengið mjög mikið að spurningum um námið og sérstaklega frá þeim sem eiga börn. Vonandi svara ég flestum þeirra hér
Hérna er líka linkur á mitt nám í viðskiptafræðinni – Smellið hér!
Ætla aðeins að telja upp þá kosti og galla sem mér finnst við mitt nám
Kostir
Maður skipuleggur sinn tíma sjálfur
Enginn akstur á morgnanna í skólann
Ef maður veikist eða börnin þá missir maður ekki af heilum degi- þú endurskipuleggur þig!
Hægt að stunda með vinnu
Alltaf hægt að senda kennurum póst og fá svör
Ef maður náði ekki einhverju dæmi þá getur maður spólað til baka og hlustað aftur á upptökuna
Hægt að fá námslán alveg eins og í öðrum skólum
Gallar
Maður þarf að hafa mikinn aga til að setjast niður og sinna náminu ( mjög einstaklingsbundið)
Maður hittir skólafélagana meira á netinu heldur en í alvörunni
Smá bugun í fyrstu prófunum
Ég hélt reyndar í byrjun að þetta yrði mjög einangrandi að vera heima í fjarnáminu en svo var ekki. Ég er búin að kynnast svo yndislegu fólki á þessum árum og ótrúlegt hvað nemendur eru duglegir að standa saman og aðstoða hvor aðra á facebook hópum áfanganna og ræða málin. Svo höfum við hist á vorin vinnuhópurinn minn og skálað fyrir árinu
Frá síðasta vorfögnuði
Við erum allar sem eftir eru í hópum að úskrifast í sumar að öllu óbreyttu, ég á eftir að sakna þeirra mjög enda höfum við unnið saman í 4 ár
Ekki láta neitt stoppa ykkur ef ykkur langar í nám – Finnum frekar leið sem hentar
xoxo