Ég var á dögunum að segja frá frábæru Marinara sósunni, sem maðurinn minn á heiðurinn af, á snapchatti Fagurkera og viðbrögðin létu ekki á sér standa.
Við höfum mallað þessa sósu reglulega síðan við byrjuðum að búa fyrir um 6 árum síðan og eigum þessa sósu alltaf til í frystinum í hæfilegum skömmtum og notum alltaf þegar við gerum pizzu, pasta, lasagne, gúllassúpu, brauðstangir eða hvað sem okkur dettur í hug sem hún gæti passað með.
Þetta einfaldar matargerðina svakalega þegar allir eru þreyttir og svangir á virkum dögum eftir vinnu, skóla og leikskóla og slær alltaf í gegn og við alveg elskum að dekstra við sósugerðina á einhverjum góðum sunnudegi þar sem hún má bara malla á hellunni allan daginn.
Það sem þarf í sósugerðina :
4 dósir af tómötum
3 dósir af tómatpúrru
Ólífuolía
Krydd ( salt,pipar,hvítur pipar, oreganó,steinselja, basilíka,paprika)
Hefjumst þá handa með flottan 4 ára aðstoðarkokk. Við reynum að leyfa börnunum að fylgjast með því sem hægt er og er ekki hættulegt í eldhúsinu.
Byrjum að setja smá af olífuolíu í pott og sjóða tómatpúrruna aðeins fyrst. Það nær úr þessu beiska bragði sem er af tómatpúrrunni.
Þennan dósaupptakara keyptum við í bandaríkjunum og hann er æði. Ýtir á einn takka og hann sér alveg um að opna dósirnar fyrir þig
Skellum tómötunum í nutribullet tækið ( einnig hægt að setja þá í matvinnsluvél) og þeim er svo bætt út í sósuna og þessu leyft að malla saman eins lengi og þið viljið.
Við kryddum með þessum kryddum og svo er maður allan daginn að smakka til, þetta er auðvitað smekksatriði.
Við vorum með okkar á hita í um 3 klukkutíma, slökktum svo undir og leyfum henni að kóla í pottinum á hellunni fram á kvöld.
Þegar börnin voru sofnuð um kvöldið hjálpuðumst við að og vigtuðum sósuna í zip lock poka til að setja í frystinn.
Við miðum við 175 grömm í hvern skammt sem dugar fínt fyrir 4 manna fjölskyldu td í hakk og spagettí eða á 2 pizzabotna.
320 grömmin eru svo ætluð í stórt lasagne eða álíka matargerð.
Við náðum semsagt 12 venjulegum skömmtum út úr uppskriftinni sem dugar þá í ca 3 mánuði