Nú þegar framundan er háværasta kvöld ársins er vert að minna á mikilvægi þess að vernda heyrnina og sérstaklega hjá börnum þar sem þau eru viðkvæmari fyrir hávaða en fullorðnir.
Í fyrra keyptum við heyrnahlífar fyrir börnin hjá björgunarsveitunum sem hafa aldeilis komið sér vel allt árið.
Hlífarnar koma sér vel á tónleikum, íþróttaleikjum og þegar farið er í bíó en það hefur virkað mjög vel á minn strák sem er stundum illa við mikinn hávaða.
Einnig verða allir að eiga góð hlífðargleraugu og fara varlega þegar kemur að notkun flugelda.
Eigið yndisleg og örugg áramót