Table of Contents
Færslan er unnin í samstarfi við Stjörnupopp
Á dögunum fékk ég það dásamlega skemmtilegt verkefni að setja upp poppbar með poppinu frá stjörnupoppi.
Nú eru margar útskriftarveislur og brúðkaup framundan og poppbar slær í gegn í öllu veislum.
Ég er elska popp, allskonar popp og úrvalið síðustu ár hefur aukist svakalega hér á landi mér til mikillar gleði.
Ég hef lengi safnað fallegum myndum á pinterest af fallegum poppbörum og beðið lengi eftir tækifæri til að geta sett upp glæsilegan poppbar fyrir veislugesti, og nú kom tækifærið.
Ég safnaði saman þeim glerkrukkum sem ég átti til og hef lengi safnað í gegnum tíðina og vildi hafa þær í nokkrum stærðum þar sem það myndar ákveðinn svip á barinn.
Þemað í veislunni er gyllt og því vantaði mig fallegt skraut til að gera fallegan bakgrunn fyrir barinn.
Ég fann ekkert í búðunum þannig að ég keypti fallegan gylltan glansandi pappír í Söstrene grene og bjó til fánalengju úr honum.
ég bjó til skapalón úr venjulegum pappír og klippti svo gyllta pappírinn eftir því.
Afgangana nýtti ég svo til að búa til merkimiðana á hverja og eina glerkrús.
Ég var með fimm tegundir af poppi – eitthvað fyrir alla
Ostapopp
Bíópopp
Lakkríspopp
Karamellupopp
Kropp- popp
Sælgætispoppið frá Stjörnupoppi – Hættulega gott
Ég var lengi að spá í ílátum fyrir poppið en rakst á þessi glæsilegu gylltu ísbox sem ein var að selja eftir brúðkaupið sitt. Fullkomið fyrir mitt þema!
Ég málaði ikea ramma og prentaði út lista yfir úrvalið
Nokkur góð ráð :
Poppbarinn er hægt að útbúa á ýmsa vegu og tilvalið að vera tímanlega í að ákveða og safna fallegum ílátum saman.
Ef maður notar mjög stórar krukkur þurfa þær meira magn, oft er hægt að svindla aðeins og setja glas á hvolfi ofaní krukkuna til að barinn líti út fyrir að vera fullur – sérstaklega fyrir myndatökuna
Passa að velja góðar skeiðar í barinn þannig að fólk noti þær- það er ekkert girnilegt að borða popp sem allir gestirnir eru búin að þukla á með höndunum
Kaupa nóg af poppi, það kostar ekki mikið og auðvelt að fylla á eftir þörfum
Ég er að undir búa fleiri spennandi verkefni fyrir veislu ef þið viljið fylgjast með mér
Þið finnið mig á snapchat undir —- Hannsythora