Table of Contents
Ég keypti lax í búðinni um daginn og langaði að prófa eitthvað nýtt.
Útkoman var dámsamlega góð og ég bara verð að deila þessari snilld með ykkur
Ég elska pistasíu hneturnar frá this is nuts og ég kalla þetta algjörar dekurhnetur þar sem maður þarf ekki að taka utanaf þeim. Þær fást ma. í sælkeraverslunum, blómavali og fleiri stöðum.
Ég keypti svona fisk í bónus sem leit mjög vel út. setti hann á bökunarpappír og ofaní ofnfast mót.
Smá salt yfir fiskinn
Teriaki sósa sett yfir allan laxinn
Pistasíuhneturnar fara ofaná sósuna
Fetaosturinn þessi blái í olíunni fer svo ofaná allt að lokum.
Þetta fer svo inn í ofn í ca 30 mínútur eða þar til laxinn er tilbúinn
Ég var með brokkoli og gulrætur sem ég setti í ofninn með smá avokadó olíu og lakkríssalti sem er algjör dásemd!
Þið finnið mig á snapchat – Hannsythora