Table of Contents
Ég var úti í New york þann 5 Maí síðast liðinn en þann daginn er hátíðsdagur í mexíkó (Cinqo de mayo) og því mikið um mexíkóskan mat í verslunum í bandaríkjunum, skraut og drykki. Ég tók með mér litlar tortillur í street taco stíl heim og fannst tilvalið að prófa þetta í vikunni.
Uppskriftin er einföld en það er tilvalið að grilla kjúklinginn eitt kvöldið og nota afgangana í tacos daginn eftir.
Uppskrift
1 bakki úrbeinuð kjúklingalæri ( Það má nota hvaða kjöt sem er en mér finnst koma besta bragðið af lærum)
Marinering :
1 dl Caj P kryddolía
1 dl BBQ sósa að eigin vali
1 tsk paprikuduft
1 tsk hvítlauksduft
1 lime kreist yfir
Salt og pipar eftir smekk
Lærin grilluð á háum hita þar til tilbúin.
Meðlætið getur verið allskonar en ég var með kál, litla mangó bita, gúrku, tómata. Mér finnst mikilvægt að skera grænmetið mjög smátt þegar um svona litlar tortillur er að ræða, þá blandast allt betur saman og bragðið nýtur sín
Salsa sósa og sýrður rjómi ávallt nauðsynlegt í hvaða mexíkóska rétti sem er, sniðugt að hafa nokkra styrkleika af salsa sósu ef maður fær gesti í mat.
Gott er að skera lime í litla báta og hver og einn kreistir svo yfir sitt taco áður en það er borðað