Ég var að prófa mig áfram í eftirréttagerðinni fyrir Ketó matarræðið mitt og langaði að deila með ykkur þessari dásamlegu súkkulaðiostaköku með möndlubotni sem minnir einna helst á OREO.
Upppskriftin er afar einföld og það þarf ekki að baka kökuna í ofni sem gerir hana einstaklega fljótlega.
Ostakökublanda
100 gr smjör við stofuhita
200 gr hreinn rjómaostur við stofuhita
2 msk sukrin “flórsykur” (fæst td í nettó í heilsudeildinni)
2 dl Þeyttur rjómi eða 1 dós sýrður rjómi ( fer eftir smekk hvers og eins)
2 tsk vanilludropar
3 msk hreint kakó
“OREO” möndlukurl
1 dl Möndlumjöl
2 tsk Kakóduft
2 msk Sukrin púðursykur
Smjör klípa
Byrja á því að þeyta rjómann og taka til hliðar
Í sömu skál skelli ég smjörinu og rjómaostinum ásamt vanilludropum, kakóinu og “flórsykrinum” frá Sukrin og þeyti allt vel og lengi saman áður en rjómanum er bætt varlega útí.
Á meðan ég er að þeyta ostablönduna bý ég til kurlið sem minnir mjög á OREO!
Ég set ég möndlumjöl á þurra pönnu og leyfi því aðeins og brúnast. Bæti svo 2 tsk af kakó útá blönduna ásamt 2 msk af sukrin “púðursykri” og smá klípu af smjöri. Tek þetta til hliðar og leyfi því að kólna áður en þetta er sett í botninn á fallegu glasi og ostakökublandan sett yfir.
Voila!
Snilldar eftirréttur fyrir alla hvort sem þeir eru á ketó eða ekki
Ég prófaði einnig að setja restina af blöndunni í box og stráði “oreo” kurlinu yfir og ætla að skera niður í bita og nota sem fitubombur þegar mig vantar meiri fitu yfir daginn eða þegar sykurpúkinn bankar uppá
Facebook síðuna mína með allskyns uppskriftum finnið þið undir Hönnukökur eða með því að smella hér!